|
|
21.08.2006 20:52:01 / jana
Jæja maður kom heim á laugardaginn/sunnudaginn kl 1 am... Var
mjög leiðinlegt að kveðja alla þarna úti en samt sem áður æðislegt
að koma heim... Hefði viljað fara niður í bæ á laugardaginn en nei
nei kemur maður ekki kvefaður og með hita og læti heim, ekki það
skemmtilegasta... Það var strax hlupið að næsta vaski og fengið sér
ÍSLENSKT vatn takk fyrir 
Ég tók engar myndir úti, þar sem ég á enga myndavél... reyndar
tók hún Jean nokkrar myndir og set ég kannski eitthvað frá henni á
netið...
Skólasetningin var í dag og það er ótrúlegt hvað þessi
skólastjóri minn er skrítinn, hann byrjaði allt í einu bara að tala
um Sæmund fróða og síðan einhverjar kindur og eitthvað ... annars
var æði að hitta alla aftur og er ég bara mjög spennt fyrir þessu
skólaári...
kv. Jana
 
»
18.08.2006 10:23:10 / jana
A morgun mun dagurinn byrja snemma... vakna klukkan 6 og fara
nidur a rutustod... sidan verdur haldid til Cambridge og farid
eftir tad ut a flugvoll... mikid hlakka eg til ad koma heim, samt
eiginlega ekki ...
I gaerkvoldi var vedrid alveg brjalad trumur og eldingar og
urhelli... mamma var ad deyja ur hraedslu en tjahh eg var nu bara
ad fila tetta... tetta minnti mig mjog a gamla og goda daga fra tvi
ad madur var alltaf hja ommu og afa... eg man eftir tvi tegar eg
var fimm ara og sat vid stofugluggann hja ommu og afa, ta koma
tessar rosalegu eldingar (madur man kannski bara svona vel eftir
tessu tvi tad eru svo sjalda trumur og eldingar a Islandi)... Og eg
natturulega med hugmyndaflugid a fullu, ta setti eg upp mitt
finasta bros, tvi jahh eg helt ad Gud vaeri ad taka myndir af mer

Annars er nu ekkert mikid i frettum hedan, reyndar er frabaert
vedur nuna...
En eg hlakka til ad sja ykkur tegar eg kem heim a fronid
»
15.08.2006 12:25:43 / jana
well eg er byrjud ad hlakka pinu til ad koma heim og hitta
alla... samt vill eg nu vera herna sem lengst, tetta er buid ad
vera gedveikt sumar... forum til london a laugardaginn med hopinn
og kikti eg a safn med pabba... sidan var bara sofid alla helgina,
ekki gert neitt... i gaer var grenjandi rigning, eg hef aldrei adur
sed svona mikla rigningu... vedrid er ekkert tad besta nuna, tad er
hvorki rigning ne sol... annars er vedrid buid ad vera alveg
yndislegt...
og nuna eru bara adeins 4 dagar i ad eg komi heim... og aetla eg
ad reyna ad halda mer i studi til ad fara nidur i bae eftir ad eg
kem heim ...
sidan byrjar natturulega skolinn a manudaginn eg hlakka nu pinu
til ad byrja i honum aftur .. en annars hef eg bara ekkert ad
segja, tvi tad eina sem madur er ad gera herna er ad vera a
strondinni, spjalla vid kennarana og taka tatt i ithrottunum herna

»
29.07.2006 19:39:16 / jana
Jæja ég og Jean ákváðum að skella okkur til London um helgina
svona í tilefni seinasta vinnudagsins míns í Kent school á
föstudaginn, en fyrir þá sem ekki vita verð ég hópstjóri næstu
þrjár vikurnar, með íslenskan hóp... Veðrið er búið að vera frekar
gott og er maður búin að vera ógeðsleg í vinnunni seinustu
vikurnar... en vonandi heldur góða veðrið áfram því maður
hefur þá kannski smá tíma til að kíkja á ströndina, með minni góðu
fjölskyldu ... En Erla, mamma og Tinna mín koma á morgun...
En sem sagt ég og Jean fórum á Oxford street í dag og var þar
margt um manninn... ég keypti mér nú ekki neitt sem er mjög
óeðlilegt, ég held bara að allur verslunarfílíngur sé dottinn úr
mér því ég veit að ég á mjööög lítinn pening eftir ....
Við löbbuðum og löbbuðum og löbbuðum þangað til við vorum næstum
komnar að Westminister en þá sáum við einhver ljós og fullt af
fólki í kringum einhverja verði... tjahh við fórum og tékkuðum hvað
væri í gangi og viti menn það var verið að taka upp einhverja
kvikmynd, einhverja stríðsmynd... ég sá einhverja leikara en engan
frægan því miður ... en hins vegar keyrði þessi þvílíka
limmosía fram hjá okkur, kannski einhver leikari að mæta á
frumsýningu á leicester squere tjahh maður veit aldrei...
En annars hef ég nú ekki meira að segja í bili... hlakka til að
sjá ykkur öll þegar ég kem aftur á klakann ..
»
12.07.2006 13:43:13 / jana
uff... loksins komst eg a internetid... for a bokasafnid herna
og viti menn eg fekk bokasafnskort, tid sem tekkid mig super vel
vitid hvad tetta tydir i lifi minu, ad fa bokasafnskort i
hendurnar.
Tad er buid ad vera svaka stud herna, gedveikt vedur og eg vona
ad eg se komin med sma lit... tar sem eg er ekki med neina
stafraena myndavel ta get eg ekki latid neinar myndir inn a
netid... hins vegar er jean sem byr i sama husi og eg en er i odrum
skola, buin ad vera mjog dugleg ad taka myndir og hun aetlar ad
lata mig fa addressuna a myndasidunni hennar... ta get eg nu latid
nokkrar myndir herna inna... jahh nuna aetti eg ad vera i
canterbury en tar sem eg er ad spara pening akvad eg ad sleppa tvi
i tetta skiptid og fara heim ad sofa... eg get nu samt bara verid i
klst a netinu a hverjum degi... hins vegar er hun jean kannski ad
fa ser internetid i naestu viku og hefur hun gefid mer tad leyfi ad
kikja a netid i tolvunni hennar ... annars er eg bara buin ad
vera i skolanum i seinustu viku og tessari viku... jahh tad er nu
bara mjog gaman...
Hins vegar er eg byrjud ad sakna mommu og pabba mats tvi
maturinn herna er ekki alveg ad gera sig... tad er eiginlega allt
djupsteikt og fish and chips fae eg tvisvar i viku i kvoldmat... en
gudi ser lof eg tarf ekki ad borda ogedslegu ensku pylsurnar tvi eg
let nu vita ad eg bordadi tad ekki... annars er nu bara ekkert ad
fretta, eg er svona rett byrjud ad kynnast folkinu herna eda
krokkunum i skolanum og tau eru mjog fin... naestu tvaer vikurnar
verd eg sidan ad vinna i skolanum og sidan loksins some relatives
sem eg get sed en tau koma eftir 2 og halfa viku...
En nuna er bara ekki neitt i sjonvarpinu allur fotboltinn buinn
og var eg ekki satt med urslitin.. eg taladi vid einn italskan
strak sem er i bekknum minum um tetta og otrulegt en satt honum
fannst italia ekki hafa skilid ad vinna, eg vard mjog hissa...
en annars er nog i bili, hef ekkert meira ad segja tvi tad er
ekkert mikid i gangi i tessum bae nema ju tad er flugeldasyning
hvert einasta midvikudagskvold og ollum finnst tad voda spennandi,
en tar sem eg er islendingur og islendingar eru flugeldaodir ta er
tetta engin svaka syning .. en gott ad folkid herna getur skemmt
ser ..
kv. Jana
»
26.06.2006 14:49:57 / jana
tjahh jaeja nuna sit eg herna a skrifstofunni og a ad svara i
simann herna... jiii minn, ef eg var stressud ad svara i simann hja
syslumanninum ta getid tid ekki ymindad ykkur hvernig mer
lidur nuna.. hjartad er a hundrad og ef einhver hringir stama eg
eins og einhver bjani, en jahh eg laeri nu af tessu...
kom hingad til broadstairs i gaer eftir aedislega dvol i london,
takk aedislega fyrir mig jon og kristin, tetta var aedi... sidan
loksins einhver aettingi, erla og nonni koma hingad naestu helgi og
eg hlakka ekkert sma adeins til... sidan kemur natturulega
fjolskyldan hingad eftir 5 vikur... konan sem eg er hja er frabaer,
hun dyrkar fotbolta, en jahh heldur reyndar med arsenal en eg get
horft fram hja tvi...
sidan tad otrulegasta, folkid herna er alltaf ad hrosa mer hvad
eg er god i ensku, og tetta kemur mer alveg i opna skjoldu... en eg
hlakka mjog mikid til ad vera herna, tott tetta eigi eftir ad vera
erfitt stundum, en eg er ordin stor stelpa og get tetta ...
annars er nu ekki mikid i frettum.. eg er bara ad bida eftir ad
tessi vinnudagur klarist og ta get eg adeins farid heim ad leggja
mig...
en eg er nu ekki viss ad eg geti skrifad mikid herna inn a, tvi
tad er ekki vist ad eg komist mikid i tolvuna... en hulda eg hef
ekki enn getad skilad kvedjunni tinni a einhverja saeta straka...
hef allavegana ekki hitt neinn enn sem komid er...
kv. Jana
»
21.06.2006 11:09:46 / jana
Jæja ég var búin að reyna að skrifa þessa færslu upp 3 og hún
datt alltaf út því ég gat ekki copyað textann í tölvunni sem ég
skrifaði þetta fyrst í ... En ég hef loksins komist yfir
það... Núna eru aðeins 4 dagar í Broadstairs og kvíðinn eykst
alltaf meira og meira...
Seinasta helgi var undurfljót að líða og bara seinustu dagar...
Erna kom hingað frá Brighton á föstudagskvöldið og sótti ég hana út
á London Victoria... Við fórum hingað heim með dótið hennar og
síðan beint í næsta bæ eða Richmond... Fórum þar á geðveikan
pizzastað, var hins vegar bærinn fullt af ölvuðu fólki og tjahh ég
verð nú bara að viðurkenna það, þegar blindfullir Bretar eru í
kringum mig þá fer pínu hræðsluhrollur um mig en þetta
bjargaðist ..
Laugardagurinn var byrjaður snemma... Vöknuðum um 9 leytið
og fórum niður í bæ um 10/10:30.... byrjaði ég að fara með Ernu út
á Green Park en þar er Buckingham Palace og jáhh þá komst
ég að því að Erna þyrfti nú að gerast aðeins menningarlegri og
sagði ég henni að þetta væri höll drottningarinnar... Það var
fullt af fólki hjá höllinni því það var einhver
þvílík hátíðarhöld í gangi út af afmæli drottningarinnar...
Erna nennti hins vegar ekki að bíða þarna þannig ekki var
drottningin eða Prince William séð í þessari för... Við
löbbuðum niður að Piccadilly circus þar sem stóra
auglýsingarskiltið er og löbbuðum þaðan upp á Oxford Street...
Byrjuðum á að fara í Topshop og vorum þar í rúma 2 tíma,
sem er ekki skrítið því þetta er náttúrulega risa stór búð... Síðan
röltuðum við í leikhúsið að ná í miðana okkar fyrir kvöldið...
Fórum á Leicester squere þar sem öll bíóin eru og
allar frumsýningarnar í Englandi eru haldnar... Þar var
einhver bílahátíð og var þá fullt af fólki þar... Löbbuðum síðan
niður á Trafalgar squere og þar var nú líka einhver hátíð
hjá Sri Lanka búum...
Um kvöldið fórum við á We will rock you og sé ég sko
ekki eftir að hafa eitt peningunum m´inum í þá sýningu.. Hún
var GEÐVEIK, þetta var svo vel sungið og mjög fyndið
leikrit... Eftir leikritið löbbuðum við að Big Ben og
Westminister og tókum síðan bara lestina heim.. Komum heim og
rotuðumst gjörsamlega...
Sunnudagurinn byrjaði með smávægilegum harðsperrum en
það fór fljótt.. Kíktum við aðeins í eina íþróttabúð og
tókum sunnudeginum rólega... Erna fór síðan heim um kvöldið og
krakkarnir komu heim frá Íslandi... Síðan er nú ekki búið að vera
að gera mikið nema fara með krakkana í skólann og svona ...
En ég held að það sé komið nóg í bili...
Auf wiederhören,
Kv. Jana
»
13.06.2006 08:09:09 / jana
Já ég hélt að ég mundi ekki segja þetta, en loksins kom
rigningin... Það var óendanlega heitt í gær, held að hitinn hafi
farið upp í 32°C... Og mánudagsnóttina var 23°C hiti O... En
loksins er kominn smá kuldi, þannig maður bráðni ekki alveg
niður...
Á laugardaginn fór ég í leikhús á Footloose, var það mjög
skemmtilegt leikrit, nema hitinn var alveg óbærilegur í
leikhúsinu... Á sunnudaginn fórum við í Brighton, og kíktum í
eitthvað lítið tívolí þar á ströndinn, það var mjög fínt, kom maður
heim sólbrunninn og læti ...
En annars er nú ekki mikið í fréttum, er að fara til Broadstairs
eftir 2 vikur og ég er byrjuð að kvíða pínu fyrir ...
Kveðja,
Jana 
»
08.06.2006 20:34:15 / jana
»
06.06.2006 09:37:19 / jana
Já eins og ég sagði í seinustu færslu þá þurfti ég að drífa mig
til Englands. Þessi vika er búin að vera hreint út sagt frábær... Á
sunnudaginn var um 25 stiga hiti og var æði að sita úti í heitu
veðrinu. Í gær var nokkuð heitt líka sól og læti og fór mín bara og
spókaði sig um á Oxford Street, kíkti í nokkrar búðir, en jahh mín
er að spara þannig það var nú ekki keypt mikið. Á laugardaginn fór
ég með Sonju í Bluewater (a.k.a. the biggest mall in Europe) úff
það var þvílíkt átak að afreka að labba í gegnum allt þetta moll.
Ég og Sonja vorum dauðuppgefnar og veskið líka að fara að segja
sitt síðasta, enda var keypt alveg ágætlega mikið .
Og já í dag er dagurinn... ÉG Á AFMÆLI og er orðin 19 ára vúhú
(ekki að það sé eitthvað merkilegt með 19 ára aldurinn, en hvað um
það ég á þó afmæli) og auðvitað er verið að auglýsa einhverjar
hryllingsmyndir og djöflamyndir núna en jahh ég kyppi mér nú ekkert
upp við það... Var vakin í morgun með söng og köku af Kristínu,
Jóni, Sonju og Sindra (fjölskyldan sem ég er hjá (vinkona hennar
mömmu)) og gáfu þau mér þetta fallega, fallega strandarhandklæði og
dvd diskinn Pride and Prejudice .. En mamma og pabbi
og Tinna sætasta systir mér þykir mjög leitt að ekkert
samband hafi verið á símanum mínum í morgun og er ég með kökkinn í
hálsinum að hafa ekki heyrt í ykkur.. En mamma hringdi í morgun og
óskaði mér til hamingju með afmælið ... Kristjana,
Þorgeir, Lóa, Ari og Hildur takk fyrir afmælisgjöfina hún
var æði Og Linda takk fyrir afmæliskveðjuna 
Annars verður bara spókað sig um í þessu fallega veðri á þessum
fallega degi.. ætli ég skreppi ekki í næsta bæjarhluta og kíki
aðeins í búðargluggana. En þar keypti ég mér einmitt nýjan síma
(sumir segja að tími hafi verið kominn á hinn símann og er ég því
sammála )
En annars er ekki meira í fréttum héðan
Kveðjur,
Jana afmælisbarn 

»
29.05.2006 19:36:43 / jana
Já sælt veri fólkið
Ég mun halda til Englands í fyrramálið og mun halda mig í London
næstu 3-4 vikurnar, mjög gaman að upplifa HM fótbolta stemninguna í
höfuðborg mesta fótboltalands heims .. EN ferðaáætlunin breyttist
örlítið ... þannig bara bless allir og ég bara biðst
fyrirgefningar að ná ekki að kveðja ykkur öll... en ég mun nú
reglulega vera inn á msn og ef einhver þarf að ná í mig verður
enska nr. mitt þar 
en good bye og sjáumst aftur í lok ágúst 
kv. jana


»
18.05.2006 09:20:05 / jana
»
05.05.2006 22:02:39 / jana
Já ef einhver vill vera svo vænn að bjarga
mér frá þunglyndi þessa helgi, er það vel þegið. Ég var
í þýsku prófi í dag og ég fór inn með tárin í augunum...
Síðan var munnlegt próf þar á eftir og þá kom bara einhver
romsa upp úr mér þannig þetta varð allt að einni
klessu...
En það sem mín þunglyndi mun aðalega stafa af er
ekki að ég á 5 próf eftir (sem sagt búin að taka 6 próf) heldur er
ég að fara að læra í leiðinlegustu námsbókum sem hægt er að finna
... ég gæti farið að grenja þetta er svo leiðinlegt námsefni, en
já það er einmitt slitur og bók af bók... slitur er mesta kjaftæði
sem ég hef nokkrum sinni augum litið á...
Ef þið vitið um eitthvað sem getur komið mér til
að hlæja (það þarf nú oftast ekki mikið, en í þetta skiptið er um
all verulega alvarleg ástand að ræða), komið mér í gott skap eða
jafnvel eitthvað annað þá væri það frábært...
takk í bili..
kv. jana sem er að farast
»
12.04.2006 17:03:25 / jana
Ég var að pæla, þar sem ég ætti að vera að læra fór ég bara að
hugsa um eitthvað allt annað en efnafræðina (tók einnig þá ákvörðun
að lærdómurinn byrjar á morgun)... En pælingar mínar fólust í því
að á hvaða tímapunkti verður maður svona skíthræddur við
hryllingsmyndir og fær martraðir og þess lags... Eins og flest
allir sem þekkja mig mjög vel þá er ég SKÍThrædd við
hryllingsmyndir, gæti þessi hræðsla hafa myndast þegar maður var
yngri og fékk einhverja slæma martröð.
Kannski hefur það verið þannig hjá mér, þar sem ég man alltaf
eftir einni martröð sem ég fékk þegar ég var um 8 ára aldurinn...
Mig dreymdi sem sagt að ég, mamma og pabbi höfum verið einhvers
staðar að labba og lentum inn á ruslahaugum... Þá komum við auga á
þessa hræðilegu grameðlu... Við földum okkur þannig hún sæi okkur
ekki, en hún fann lyktina af okkur og byrjaði að elta okkur... við
hlupum eins og brjálæðingar og fundum þessa fínu rennibraut
þarna... Mamma og pabbi byrjuðu að renna sér niður en þá er
grameðlan fyrir neðan og borðar þau ég hleyp síðan út úr
haugunum og þá vakna ég með grátstafinn í kverkunum... Kannski
hefur mín hræðsla myndast á þessum tímapunkti... Ég verð hrædd við
allt... ef ég er að keyra í myrkri þá verð ég skíthrædd, Hildur
súper sjóari kannast líklegast við það ....
Það er enn eitt sem ég á alltaf eftir að muna og Linda þú mannst
það líklegast líka... Það var eins og þetta hafi skeð í gær... Ég
og Linda vorum sem sagt að passa eitt laugardagskvöldið hér fyrr um
árin... Vorum voða harðar og fórum á video leiguna og tókum myndina
I know what you did last summer... Okei við horfðum á myndina voða
hressar... síðan seinna um kvöldið sátum við í herberginu mínu og
þá byrjar rúmmið mitt að hristast.. (fyrirgefið þið sem hafið
ekki séð þessa mynd en ég mun uppljóstra endinum hér og nú)... en
myndin endar sem sagt á því að morðinginn er undir rúminu... ég
verð skíthrædd... kíki samt sem áður undir rúmið, en auðvitað var
enginn þar ... þetta var þá bara jarðskjálfti eftir allt
saman...
Úff síðan í 7. bekk skeði eitt það hallærislegasta með
hryllingskvikmynd... Ég og Íris vorum að passa hjá henni og hún var
nýflutt... Við fórum á vídjóleiguna og tókum Deep blue sea, sem er
alls ekki hræðileg, get þó viðurkennt það... Lykillinn af
klósettinu var sem sagt týndur og við leituðum í lyklahrúgunni...
síaðn fundum við einn lykil sem passaði og viti menn við gáfuðustu
manneskjur í heimi læstum okkur inni á klósetti því við þurftum að
prufa lykilinn þegar við vorum inni á baðherberginu ... þegar við
loksins náðum að opna hurðina vorum við orðnar svo skíthræddar að
við fórum að horfa á strumpana í staðinn fyrir deep blue sea 
En pælingin er samt hvort ég hafi orðið svona ótrúlega myrkfælin
við þessa martröð mína og upplifun hér fyrr um árin... Ég verð
meirað segja oft hrædd við að horfa á uppáhaldsmyndirnar mínar,
seven, fallen og the green mile ... Samt sem áður er mjög
mikið af myndum sem ég vill sjá, sem eru sem sagt hryllingsmyndir,
en fyrst þarf maður að finna einhverja manneskju sem er mjög
uppörvandi við svona áhorf, einhvern sem hlær af þessu rugli
...
Þessi mynd er einnig alltaf frábær
sérstaklega lagið, samt sem áður fær maður stundum hræðsluhroll

En allavegana vildi bara leyfa ykkur að pæla aðeins í þessu með
mér, hafði heldur varla neitt að segja 
Annars er það bara páskafríið og ég hætt í vinnunni, þannig það
verður nóg að gera í lærdómnum þessa vikuna og þá næstu, eða þangað
til skólinn byrjar aftur...
Því segji ég bara gleðilega páska og étið nú helling af
nammi, ég ætla allavegana að gera það 

Kv. Jana Strútur
»
30.03.2006 08:55:11 / jana
Ótrúlegt en satt litla litla systir mín orðin 11 ára ...
var vakin í morgun með þvílíkt góðum morgunmat... En til hamingju
með afmælið sæta systir

kveð að sinni
»
Síður: 1 2 3 4
|
|